Síðari bók konunganna 9

<< Síðari bók konunganna 9 >>
2 Kings 9 Icelandic
 

1 Elísa spámaður kallaði einn af spámannasveinunum og sagði við hann: ,,Gyrð þú lendar þínar, tak þessa flösku af olífuolíu með þér og far til Ramót í Gíleað. 2 Og er þú ert þangað kominn, skalt þú svipast þar um eftir Jehú Jósafatssyni, Nimsísonar. Gakk síðan til hans og bið hann standa upp frá félögum sínum og far með hann inn í innsta herbergið. 3 Því næst skalt þú hella olífuolíunni yfir höfuð honum og segja: ,Svo segir Drottinn: Ég smyr þig til konungs yfir Ísrael.` Opna þú síðan dyrnar og flýt þér burt og dvel eigi.``

4 Fór þá sveinninn, sveinn spámannsins, til Ramót í Gíleað. 5 En er hann kom þangað, sátu herforingjarnir þar saman. Og hann mælti: ,,Ég á erindi við þig, herforingi!`` Jehú svaraði: ,,Við hvern af oss?`` Hann svaraði: ,,Við þig, herforingi!`` 6 Þá stóð hann upp og gekk inn í húsið. Og hann hellti olíu yfir höfuð honum og sagði við hann: ,,Svo segir Drottinn, Ísraels Guð: Ég smyr þig til konungs yfir lýð Drottins, yfir Ísrael. 7 Þú skalt útrýma ætt Akabs, herra þíns, svo að ég fái þann veg komið fram hefndum á Jesebel fyrir blóð þjóna minna, spámannanna, og fyrir blóð allra þjóna Drottins. 8 Já, öll ætt Akabs skal fyrirfarast, og ég mun uppræta fyrir Akabsætt hvern karlmann, bæði þræl og frelsingja í Ísrael. 9 Og ég mun fara með ætt Akabs eins og með ætt Jeróbóams Nebatssonar og ætt Basa Ahíasonar. 10 En Jesebel skulu hundar eta í landareign Jesreelborgar, og enginn skal jarða hana.`` Síðan lauk hann upp hurðinni og flýtti sér burt.

11 En er Jehú kom út til þjóna herra síns, sögðu þeir við hann: ,,Er nokkuð að? Hvers vegna er þessi vitfirringur til þín kominn?`` Hann svaraði þeim: ,,Þér þekkið manninn og tal hans.`` 12 Þá sögðu þeir: ,,Það er ósatt mál! Seg oss það.`` Þá sagði hann: ,,Svo og svo hefir hann við mig talað og sagt: ,Svo segir Drottinn: Ég smyr þig til konungs yfir Ísrael.``` 13 Þá tóku þeir í skyndi hver sína yfirhöfn og lögðu fyrir fætur honum á sjálfar tröppurnar, þeyttu lúðurinn og hrópuðu: ,,Jehú er konungur orðinn!``

14 Þannig hóf Jehú Jósafatsson, Nimsísonar, samsæri gegn Jóram, en Jóram og allur Ísrael hafði varið Ramót í Gíleað fyrir Hasael Sýrlandskonungi. 15 En síðan hafði Jóram konungur snúið aftur til þess að láta græða sár sín í Jesreel, þau er Sýrlendingar höfðu veitt honum, þá er hann barðist við Hasael Sýrlandskonung. Jehú mælti: ,,Ef þér viljið fylgja mér, þá látið engan undan komast út úr borginni til þess að segja tíðindin í Jesreel.`` 16 Síðan steig Jehú á vagn sinn og hélt til Jesreel, því að þar lá Jóram, og Ahasía Júdakonungur var kominn þangað til að vitja um Jóram.

17 Varðmaður stóð uppi á turninum í Jesreel, og er hann sá flokk Jehú koma, sagði hann: ,,Ég sé flokk manna.`` Þá mælti Jóram: ,,Tak riddara og send móti þeim til þess að spyrja þá, hvort þeir fari með friði.`` 18 Riddarinn fór í móti honum og sagði: ,,Konungur lætur spyrja, hvort þér farið með friði.`` Jehú svaraði: ,,Hvað varðar þig um það? Snú við og fylg mér.`` Varðmaðurinn sagði frá því og mælti: ,,Sendimaðurinn er kominn til þeirra, en kemur ekki aftur.`` 19 Þá sendi hann annan riddara, og er hann kom til þeirra, sagði hann: ,,Konungur lætur spyrja, hvort þér farið með friði.`` Jehú svaraði: ,,Hvað varðar þig um það? Snú við og fylg mér.`` 20 Varðmaðurinn sagði frá því og mælti: ,,Hann er kominn til þeirra, en kemur ekki aftur. Er þar ekið, sem aki þar Jehú Nimsíson, því að hann ekur eins og vitlaus maður.``

21 Þá bauð Jóram að beita fyrir vagn sinn. Og er beitt hafði verið fyrir vagn hans, fóru þeir Jóram Ísraelskonungur og Ahasía Júdakonungur af stað, hvor á sínum vagni. Fóru þeir í móti Jehú og hittu hann á landspildu Nabóts Jesreelíta. 22 En er Jóram sá Jehú, sagði hann: ,,Fer þú með friði, Jehú?`` Hann svaraði: ,,Hvað er um frið að ræða, meðan Jesebel móðir þín heldur áfram með hórdóm sinn og hina margvíslegu töfra sína?`` 23 Þá sneri Jóram við og lagði á flótta og kallaði til Ahasía: ,,Svik, Ahasía!`` 24 En Jehú þreif boga sinn og skaut Jóram milli herða, svo að örin gekk í gegnum hjartað, og hné hann niður í vagni sínum. 25 Þá sagði hann við Bídkar, riddara sinn: ,,Tak hann og kasta honum á landspildu Nabóts Jesreelíta, því að þú manst víst, að ég og þú riðum báðir á eftir Akab föður hans, þá er Drottinn kvað upp þessi dómsorð gegn honum: 26 ,Sannarlega sá ég í gær blóð Nabóts og blóð barna hans, segir Drottinn, og mun ég launa þér á landspildu þessari, segir Drottinn.` Tak hann því og kasta honum á landspilduna eftir orði Drottins.``

27 Þegar Ahasía Júdakonungur sá þetta, flýði hann í áttina til garðhússins. En Jehú elti hann og sagði: ,,Hann líka! Skjótið hann í vagninum!`` Og þeir skutu hann á Gúr-stígnum, sem er hjá Jibleam. Og hann flýði til Megiddó og dó þar. 28 Síðan settu menn hans hann á vagn og fluttu hann til Jerúsalem og jörðuðu hann í gröf hans hjá feðrum hans í borg Davíðs.

29 En Ahasía hafði orðið konungur í Júda á ellefta ríkisári Jórams Akabssonar.

30 Nú kom Jehú til Jesreel. En er Jesebel frétti það, smurði hún sig í kringum augun skrýddi höfuð sitt og horfði út um gluggann. 31 Og er Jehú kom í hliðið, kallaði hún: ,,Hvernig líður Simrí, sem myrti herra sinn?`` 32 En hann leit upp í gluggann og mælti: ,,Hver er með mér, hver?`` Og er tveir eða þrír hirðmenn litu út til hans,

33 sagði hann: ,,Kastið henni ofan!`` Og þeir köstuðu henni ofan, og slettist þá blóð hennar á vegginn og hestana, og tróðu þeir hana undir fótunum. 34 En hann gekk inn og át og drakk. Síðan sagði hann: ,,Lítið eftir þessari bölvuðu konu og jarðið hana, því að konungsdóttir er hún.`` 35 Þá fóru þeir til þess að jarða hana, en fundu ekkert af henni, nema hauskúpuna og fætur og hendur. 36 Og er þeir komu aftur og sögðu honum frá, mælti hann: ,,Rætast nú orð Drottins, þau er hann talaði fyrir munn þjóns síns Elía frá Tisbe: ,Á landareign Jesreelborgar skulu hundar eta hold Jesebelar, 37 og hræ Jesebelar skal liggja á landareign Jesreelborgar sem tað á túni, svo að menn skulu ekki geta sagt: Það er Jesebel.```