Sálmarnir 108

<< Sálmarnir 108 >>
Psalm 108 Icelandic
 

1 Ljóð. Davíðssálmur.

2 Hjarta mitt er stöðugt, ó Guð, ég vil syngja og leika, vakna þú, sála mín!

3 Vakna þú, harpa og gígja, ég vil vekja morgunroðann.

4 Ég vil lofa þig meðal lýðanna, Drottinn, vegsama þig meðal þjóðanna,

5 því að miskunn þín er himnum hærri, og trúfesti þín nær til skýjanna.

6 Sýn þig himnum hærri, ó Guð, og dýrð þín breiðist yfir gjörvalla jörðina,

7 til þess að ástvinir þínir megi frelsast. Hjálpa þú með hægri hendi þinni og bænheyr mig.

8 Guð hefir sagt í helgidómi sínum: ,,Ég vil fagna, ég vil skipta Síkem, mæla út Súkkót-dal.

9 Ég á Gíleað, ég á Manasse, og Efraím er hlíf höfði mínu, Júda veldissproti minn.

10 Móab er mundlaug mín, í Edóm fleygi ég skónum mínum, yfir Filisteu fagna ég.``

11 Hver vill fara með mig í örugga borg, hver vill flytja mig til Edóm?

12 Þú hefir útskúfað oss, ó Guð, og þú, Guð, fer eigi út með hersveitum vorum.

13 Veit oss lið gegn fjandmönnunum, því að mannahjálp er ónýt. [ (Psalms 108:14) Með Guðs hjálp munum vér hreystiverk vinna, og hann mun troða óvini vora fótum. ]