Sakaría 1

<< Sakaría 1 >>
Zechariah 1 Icelandic
 

1 Á áttunda mánuði annars ríkisárs Daríusar kom orð Drottins til Sakaría spámanns Berekíasonar, Iddósonar, svo hljóðandi: 2 Drottinn var stórreiður feðrum yðar. 3 Seg því við þá: Svo segir Drottinn allsherjar: Snúið yður til mín _ segir Drottinn allsherjar _ þá mun ég snúa mér til yðar _ segir Drottinn allsherjar. 4 Verið ekki eins og feður yðar, sem hinir fyrri spámenn áminntu með svofelldum orðum: ,,Svo segir Drottinn allsherjar: Snúið yður frá yðar vondu breytni og frá yðar vondu verkum!`` En þeir hlýddu ekki og gáfu engan gaum að mér _ segir Drottinn. 5 Feður yðar _ hvar eru þeir? Og spámennirnir _ geta þeir lifað eilíflega? 6 En orð mín og ályktanir, þau er ég bauð þjónum mínum, spámönnunum, að kunngjöra, hafa þau ekki náð feðrum yðar, svo að þeir sneru við og sögðu: ,,Eins og Drottinn allsherjar hafði ásett sér að gjöra við oss eftir breytni vorri og verkum vorum, svo hefir hann við oss gjört``?

7 Á tuttugasta og fjórða degi hins ellefta mánaðar, það er mánaðarins sebat, á öðru ríkisári Daríusar, kom orð Drottins til Sakaría spámanns Berekíasonar, Iddósonar, svo hljóðandi: 8 Ég sá sýn á náttarþeli: mann ríðandi á rauðum hesti, og hafði hann staðnæmst meðal mýrtustrjánna, sem eru í dalverpinu. Að baki honum voru rauðir, jarpir og hvítir hestar. 9 Og er ég spurði: ,,Hverjir eru þessir, herra minn?`` svaraði engillinn mér, sá er við mig talaði: ,,Ég skal sýna þér, hverjir þeir eru.`` 10 Þá tók maðurinn, sem staðnæmst hafði meðal mýrtustrjánna, til máls og sagði: ,,Þessir eru þeir, sem Drottinn hefir sent til þess að fara um jörðina.`` 11 Þá svöruðu þeir engli Drottins, er staðnæmst hafði meðal mýrtustrjánna, og sögðu: ,,Vér höfum farið um jörðina, og sjá, öll jörðin er í ró og kyrrð.``

12 Þá svaraði engill Drottins og sagði: ,,Drottinn allsherjar, hversu lengi á því fram að fara, að þú miskunnir þig ekki yfir Jerúsalem og Júdaborgir, er þú hefir nú reiður verið í sjötíu ár?`` 13 Þá svaraði Drottinn englinum, er við mig talaði, blíðum orðum og huggunarríkum, 14 og engillinn sem við mig talaði, sagði við mig: ,,Kunngjör og seg: Svo segir Drottinn allsherjar: Ég brenn af mikilli vandlæting vegna Jerúsalem og Síonar 15 og ég er stórreiður hinum andvaralausu heiðingjum, sem juku á bölið, þá er ég var lítið eitt reiður. 16 Fyrir því segir Drottinn svo: Ég sný mér aftur að Jerúsalem með miskunnsemi. Hús mitt skal verða endurreist í henni _ segir Drottinn allsherjar _ og mælivaður skal þaninn verða yfir Jerúsalem. 17 Kunngjör enn fremur og seg: Svo segir Drottinn allsherjar: Enn skulu borgir mínar fljóta í gæðum, og enn mun Drottinn hugga Síon og enn útvelja Jerúsalem.``

18  19  20  21