Sálmarnir 30

<< Sálmarnir 30 >>
Psalm 30 Icelandic
 

1 Musterisvígsluljóð. Davíðssálmur.

2 Ég tigna þig, Drottinn, því að þú hefir bjargað mér og eigi látið óvini mína hlakka yfir mér.

3 Drottinn, Guð minn, ég hrópaði til þín og þú læknaðir mig.

4 Drottinn, þú heimtir sál mína úr Helju, lést mig halda lífi, er aðrir gengu til grafar.

5 Syngið Drottni lof, þér hans trúuðu, vegsamið hans heilaga nafn.

6 Andartak stendur reiði hans, en alla ævi náð hans. Að kveldi gistir oss grátur, en gleðisöngur að morgni.

7 En ég uggði eigi að mér og hugsaði: ,,Aldrei skriðnar mér fótur.``

8 Drottinn, af náð þinni hafðir þú gjört bjarg mitt stöðugt, en nú huldir þú auglit þitt og ég skelfdist.

9 Til þín, Drottinn, kallaði ég, og Drottin grátbændi ég:

10 ,,Hver ávinningur er í dauða mínum, í því að ég gangi til grafar? Getur duftið lofað þig, kunngjört trúfesti þína?

11 Heyr, Drottinn, og líkna mér, ó Drottinn, ver þú hjálpari minn!``

12 Þú breyttir grát mínum í gleðidans, leystir af mér hærusekkinn og gyrtir mig fögnuði, [ (Psalms 30:13) að sál mín megi lofsyngja þér og eigi þagna. Drottinn, Guð minn, ég vil þakka þér að eilífu. ]