Sálmarnir 149

<< Sálmarnir 149 >>
Psalm 149 Icelandic
 

1 Halelúja. Syngið Drottni nýjan söng, lofsöngur hans hljómi í söfnuði trúaðra.

2 Ísrael gleðjist yfir skapara sínum, synir Síonar fagni yfir konungi sínum.

3 Þeir skulu lofa nafn hans með gleðidansi, leika fyrir honum á bumbur og gígjur.

4 Því að Drottinn hefir þóknun á lýð sínum, hann skrýðir hrjáða með sigri.

5 Hinir trúuðu skulu gleðjast með sæmd, syngja fagnandi í hvílum sínum

6 með lofgjörð Guðs á tungu og tvíeggjað sverð í höndum

7 til þess að framkvæma hefnd á þjóðunum, hirtingu á lýðunum,

8 til þess að binda konunga þeirra með fjötrum, þjóðhöfðingja þeirra með járnhlekkjum,

9 til þess að fullnægja á þeim skráðum dómi. Það er til vegsemdar öllum dýrkendum hans. Halelúja.