Sálmarnir 129

<< Sálmarnir 129 >>
Psalm 129 Icelandic
 

1 Þeir hafa fjandskapast mjög við mig frá æsku, _ skal Ísrael segja _

2 þeir hafa fjandskapast mjög við mig frá æsku, en þó eigi borið af mér.

3 Plógmennirnir hafa plægt um hrygg mér, gjört plógför sín löng,

4 en Drottinn hinn réttláti hefir skorið í sundur reipi óguðlegra.

5 Sneypast skulu þeir og undan hörfa, allir þeir sem hata Síon.

6 Þeir skulu verða sem gras á þekju, er visnar áður en það frævist.

7 Sláttumaðurinn skal eigi fylla hönd sína né sá fang sitt sem bindur,

8 og þeir sem fram hjá fara skulu ekki segja: ,,Blessun Drottins sé með yður.`` Vér blessum yður í nafni Drottins!