Sálmarnir 130

<< Sálmarnir 130 >>
Psalm 130 Icelandic
 

1 Úr djúpinu ákalla ég þig, Drottinn,

2 Drottinn, heyr þú raust mína, lát eyru þín hlusta á grátbeiðni mína!

3 Ef þú, Drottinn, gæfir gætur að misgjörðum, Drottinn, hver fengi þá staðist?

4 En hjá þér er fyrirgefning, svo að menn óttist þig.

5 Ég vona á Drottin, sál mín vonar, og hans orðs bíð ég.

6 Meir en vökumenn morgun, vökumenn morgun, þreyr sál mín Drottin.

7 Ó Ísrael, bíð þú Drottins, því að hjá Drottni er miskunn, og hjá honum er gnægð lausnar.

8 Hann mun leysa Ísrael frá öllum misgjörðum hans.