Amos 7

<< Amos 7 >>
Amos 7 Icelandic
 

1 Drottinn Guð lét þessa sýn bera fyrir mig: Það voru komnar engisprettulirfur, þá er háin tók til að spretta eftir konungsslátt.

2 En er þær höfðu gjöretið grasið af jörðinni, sagði ég: ,,Drottinn Guð, æ fyrirgef! Hversu má Jakob standast? Hann er svo vesall!``

3 Þá iðraði Drottin þessa. ,,Það skal ekki verða!`` sagði Drottinn.

4 Drottinn Guð lét þessa sýn bera fyrir mig: Drottinn Guð kom til þess að hegna með eldi, og hann svalg hið mikla djúp og eyddi landið.

5 Þá sagði ég: ,,Æ, Drottinn Guð, lát af! Hversu má Jakob standast? Hann er svo vesall!``

6 Þá iðraði Drottin þessa. ,,Þetta skal ekki heldur verða!`` sagði Drottinn.

7 Hann lét þessa sýn bera fyrir mig: Sjá, Drottinn stóð uppi á lóðréttum múrvegg og hélt á lóði.

8 Og Drottinn sagði við mig: ,,Hvað sér þú, Amos?`` Ég svaraði: ,,Lóð.`` Þá sagði Drottinn: ,,Sjá, ég mun lóð nota mitt á meðal lýðs míns Ísraels, ég vil eigi lengur umbera hann.

9 Hæðir Ísaks skulu í eyði lagðar verða og helgidómar Ísraels eyddir verða, og ég vil rísa gegn Jeróbóams ætt með reiddu sverði.``

10 Amasía prestur í Betel sendi boð til Jeróbóams Ísraelskonungs og lét segja: ,,Amos kveikir uppreisn gegn þér mitt í Ísraelsríki. Landið fær eigi þolað öll orð hans. 11 Því að svo hefir Amos sagt: ,Jeróbóam mun fyrir sverði falla og Ísrael mun herleiddur verða burt úr landi sínu.``` 12 Síðan sagði Amasía við Amos: ,,Haf þig á burt, vitranamaður, flý til Júdalands! Afla þér þar viðurværis og spá þú þar! 13 En í Betel mátt þú eigi framar koma fram sem spámaður, því að hér er konunglegur helgidómur og ríkismusteri.``

14 Þá svaraði Amos og sagði við Amasía: ,,Ég er enginn spámaður, og ég er ekki af spámannaflokki, heldur er ég hjarðmaður og rækta mórber. 15 En Drottinn tók mig frá hjarðmennskunni og sagði við mig: ,Far þú og spá þú hjá lýð mínum Ísrael.` 16 Og heyr því orð Drottins: Þú segir: ,Þú mátt eigi spá gegn Ísrael né láta orð þín streyma yfir Ísaks niðja.` 17 Fyrir því segir Drottinn svo: ,Konan þín skal verða skækja hér í borginni, og synir þínir og dætur skulu fyrir sverði falla. Jörð þinni skal sundur skipt verða með mælivað, og þú sjálfur skalt deyja í óhreinu landi. Og Ísraelsmenn skulu fara herleiddir af landi sínu.```