Sálmarnir 95

<< Sálmarnir 95 >>
Psalm 95 Icelandic
 

1 Komið, fögnum fyrir Drottni, látum gleðióp gjalla fyrir kletti hjálpræðis vors.

2 Komum með lofsöng fyrir auglit hans, syngjum gleðiljóð fyrir honum.

3 Því að Drottinn er mikill Guð og mikill konungur yfir öllum guðum.

4 Í hans hendi eru jarðardjúpin, og fjallatindarnir heyra honum til.

5 Hans er hafið, hann hefir skapað það, og hendur hans mynduðu þurrlendið.

6 Komið, föllum fram og krjúpum niður, beygjum kné vor fyrir Drottni, skapara vorum,

7 því að hann er vor Guð, og vér erum gæslulýður hans og hjörð sú, er hann leiðir. Ó að þér í dag vilduð heyra raust hans!

8 Herðið eigi hjörtu yðar eins og hjá Meríba, eins og daginn við Massa í eyðimörkinni,

9 þegar feður yðar freistuðu mín, reyndu mig, þótt þeir sæju verk mín.

10 Í fjörutíu ár hafði ég viðbjóð á þessari kynslóð, og ég sagði: ,,Þeir eru andlega villtur lýður og þekkja ekki vegu mína.``

11 Þess vegna sór ég í reiði minni: ,,Þeir skulu eigi ganga inn til hvíldar minnar.``