Sálmarnir 6

<< Sálmarnir 6 >>
Psalm 6 Icelandic
 

1 Til söngstjórans. Með strengjaleik á áttstrengjað hljóðfæri. Davíðssálmur.

2 Drottinn, refsa mér ekki í reiði þinni og tyfta mig ekki í gremi þinni.

3 Líkna mér, Drottinn, því að ég örmagnast, lækna mig, Drottinn, því að bein mín tærast.

4 Sál mín er óttaslegin, en þú, ó Drottinn _ hversu lengi?

5 Snú þú aftur, Drottinn, frelsa sálu mína, hjálpa mér sakir elsku þinnar.

6 Því að enginn minnist þín í dánarheimum, hver skyldi lofa þig hjá Helju?

7 Ég er þreyttur af andvörpum mínum, ég lauga rekkju mína í tárum, læt hvílu mína flóa hverja nótt.

8 Augu mín eru döpruð af harmi, orðin sljó sakir allra óvina minna.

9 Farið frá mér, allir illgjörðamenn, því að Drottinn hefir heyrt grátraust mína.

10 Drottinn hefir heyrt grátbeiðni mína, Drottinn tekur á móti bæn minni. [ (Psalms 6:11) Allir óvinir mínir skulu verða til skammar og skelfast mjög, hraða sér sneyptir burt. ]