Sálmarnir 21

<< Sálmarnir 21 >>
Psalm 21 Icelandic
 

1 Til söngstjórans. Davíðssálmur.

2 Drottinn, yfir veldi þínu fagnar konungurinn, hve mjög kætist hann yfir hjálp þinni!

3 Þú hefir gefið honum það er hjarta hans þráði, um það sem varir hans báðu, neitaðir þú honum eigi. [Sela]

4 Því að þú kemur í móti honum með hamingjublessunum, setur gullna kórónu á höfuð honum.

5 Um líf bað hann þig, það veittir þú honum, fjöld lífdaga um aldur og ævi.

6 Mikil er sæmd hans fyrir þína hjálp, vegsemd og heiður veittir þú honum.

7 Já, þú hefir veitt honum blessun að eilífu, þú gleður hann með fögnuði fyrir augliti þínu.

8 Því að konungurinn treystir Drottni, og vegna elsku Hins hæsta bifast hann eigi.

9 Hönd þín nær til allra óvina þinna, hægri hönd þín nær til allra hatursmanna þinna.

10 Þú gjörir þá sem glóandi ofn, er þú lítur á þá. Drottinn tortímir þeim í reiði sinni, og eldurinn eyðir þeim.

11 Ávöxtu þeirra afmáir þú af jörðunni og afkvæmi þeirra úr mannheimi,

12 því að þeir hafa stofnað ill ráð í gegn þér, búið fánýtar vélar.

13 Því að þú rekur þá á flótta, miðar á andlit þeirra með boga þínum. [ (Psalms 21:14) Hef þig, Drottinn, í veldi þínu! Vér viljum syngja og kveða um máttarverk þín! ]