Sakaría 5

<< Sakaría 5 >>
Zechariah 5 Icelandic
 

1 Ég hóf aftur upp augu mín og sá bókrollu, sem var á flugi. 2 Þá sagði hann við mig: ,,Hvað sér þú?`` Ég svaraði: ,,Ég sé bókrollu á flugi, tuttugu álna langa og tíu álna breiða.`` 3 Þá sagði hann við mig: ,,Þetta er bölvunin, sem út gengur yfir gjörvallt landið, því að sérhverjum sem stelur, verður samkvæmt henni sópað héðan, og sérhverjum sem meinsæri fremur, verður samkvæmt henni sópað héðan.`` 4 Ég hefi látið hana út ganga _ segir Drottinn allsherjar _ til þess að hún komi inn í hús þjófsins og inn í hús þess, sem meinsæri fremur við nafn mitt, og staðnæmist inni í húsi hans og eyði því bæði að viðum og veggjum.

5 Þessu næst gekk fram engillinn, er við mig talaði, og sagði við mig: ,,Hef upp augu þín og sjá, hvað þar kemur fram!`` 6 Ég sagði: ,,Hvað er þetta?`` Þá sagði hann: ,,Þetta er efan, sem kemur í ljós.`` Þá sagði hann: ,,Þetta er misgjörð þeirra í öllu landinu.`` 7 Þá lyftist allt í einu upp kringlótt blýlok, og sat þar kona ein niðri í efunni. 8 Þá sagði hann: ,,Þetta er Vonskan!`` _ kastaði henni ofan í efuna og kastaði blýlokinu ofan yfir opið. 9 Síðan hóf ég upp augu mín og sá allt í einu tvær konur koma fram, og stóð vindur undir vængi þeim _ því að þær höfðu vængi sem storksvængi _ og hófu þær efuna upp milli jarðar og himins. 10 Þá sagði ég við engilinn, sem við mig talaði: ,,Hvert fara þær með efuna?`` 11 Hann svaraði mér: ,,Þær ætla að reisa henni hús í Sínearlandi, og þegar það er búið, þá setja þær hana þar á sinn stað.``