Sálmarnir 8

<< Sálmarnir 8 >>
Psalm 8 Icelandic
 

1 Til söngstjórans. Á gittít. Davíðssálmur.

2 Drottinn, Guð vor, hversu dýrlegt er nafn þitt um alla jörðina! Þú breiðir ljóma þinn yfir himininn.

3 Af munni barna og brjóstmylkinga hefir þú gjört þér vígi til varnar gegn óvinum þínum, til þess að þagga niður í hefndargirni óvinarins.

4 Þegar ég horfi á himininn, verk handa þinna, tunglið og stjörnurnar, er þú hefir skapað,

5 hvað er þá maðurinn þess, að þú minnist hans, og mannsins barn, að þú vitjir þess?

6 Þú lést hann verða litlu minni en Guð, með sæmd og heiðri krýndir þú hann.

7 Þú lést hann ríkja yfir handaverkum þínum, allt lagðir þú að fótum hans:

8 sauðfénað allan og uxa, og auk þess dýr merkurinnar,

9 fugla loftsins og fiska hafsins, allt það er fer hafsins vegu. [ (Psalms 8:10) Drottinn, Guð vor, hversu dýrlegt er nafn þitt um alla jörðina! ]