Sálmarnir 16

<< Sálmarnir 16 >>
Psalm 16 Icelandic
 

1 Davíðs-miktam. Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis.

2 Ég segi við Drottin: ,,Þú ert Drottinn minn, ég á engin gæði nema þig.``

3 Á hinum heilögu sem í landinu eru og hinum dýrlegu _ á þeim hefi ég alla mína velþóknun.

4 Miklar eru þjáningar þeirra, er kjörið hafa sér annan guð. Ég vil eigi dreypa þeirra blóðugu dreypifórnum og eigi taka nöfn þeirra mér á varir.

5 Drottinn er hlutskipti mitt og minn afmældi bikar; þú heldur uppi hlut mínum.

6 Mér féllu að erfðahlut indælir staðir, og arfleifð mín líkar mér vel.

7 Ég lofa Drottin, er mér hefir ráð gefið, jafnvel um nætur er ég áminntur hið innra.

8 Ég hefi Drottin ætíð fyrir augum, þegar hann er mér til hægri handar, skriðnar mér ekki fótur.

9 Fyrir því fagnar hjarta mitt, sál mín gleðst, og líkami minn hvílist í friði,

10 því að þú ofurselur Helju eigi líf mitt, leyfir eigi að þinn trúaði sjái gröfina.

11 Kunnan gjörir þú mér veg lífsins, gleðignótt er fyrir augliti þínu, yndi í hægri hendi þinni að eilífu.