Sálmarnir 137

<< Sálmarnir 137 >>
Psalm 137 Icelandic
 

1 Við Babýlons fljót, þar sátum vér og grétum, er vér minntumst Síonar.

2 Á pílviðina þar hengdum vér upp gígjur vorar.

3 Því að herleiðendur vorir heimtuðu söngljóð af oss og kúgarar vorir kæti: ,,Syngið oss Síonarkvæði!``

4 Hvernig ættum vér að syngja Drottins ljóð í öðru landi?

5 Ef ég gleymi þér, Jerúsalem, þá visni mín hægri hönd.

6 Tunga mín loði mér við góm, ef ég man eigi til þín, ef Jerúsalem er eigi allra besta yndið mitt.

7 Mun þú Edóms niðjum, Drottinn, óheilladag Jerúsalem, þegar þeir æptu: ,,Rífið, rífið allt niður til grunna!``

8 Babýlonsdóttir, þú sem tortímir! Heill þeim, er geldur þér fyrir það sem þú hefir gjört oss!

9 Heill þeim er þrífur ungbörn þín og slær þeim niður við stein.