Sálmarnir 126

<< Sálmarnir 126 >>
Psalm 126 Icelandic
 

1 Þegar Drottinn sneri við hag Síonar, þá var sem oss dreymdi.

2 Þá fylltist munnur vor hlátri, og tungur vorar fögnuði. Þá sögðu menn meðal þjóðanna: ,,Mikla hluti hefir Drottinn gjört við þá.``

3 Drottinn hefir gjört mikla hluti við oss, vér vorum glaðir.

4 Snú við hag vorum, Drottinn, eins og þú gjörir við lækina í Suðurlandinu.

5 Þeir sem sá með tárum, munu uppskera með gleðisöng.

6 Grátandi fara menn og bera sæðið til sáningar, með gleðisöng koma þeir aftur og bera kornbindin heim.