Sálmarnir 122

<< Sálmarnir 122 >>
Psalm 122 Icelandic
 

1 Ég varð glaður, er menn sögðu við mig: ,,Göngum í hús Drottins.``

2 Fætur vorir standa í hliðum þínum, Jerúsalem.

3 Jerúsalem, þú hin endurreista, borgin þar sem öll þjóðin safnast saman,

4 þangað sem kynkvíslirnar fara, kynkvíslir Drottins _ það er regla fyrir Ísrael _ til þess að lofa nafn Drottins,

5 því að þar standa dómarastólar, stólar fyrir Davíðs ætt.

6 Biðjið Jerúsalem friðar, hljóti heill þeir, er elska þig.

7 Friður sé kringum múra þína, heill í höllum þínum.

8 Sakir bræðra minna og vina óska ég þér friðar.

9 Sakir húss Drottins, Guðs vors, vil ég leita þér hamingju.