Sálmarnir 121

<< Sálmarnir 121 >>
Psalm 121 Icelandic
 

1 Ég hef augu mín til fjallanna: Hvaðan kemur mér hjálp?

2 Hjálp mín kemur frá Drottni, skapara himins og jarðar.

3 Hann mun eigi láta fót þinn skriðna, vörður þinn blundar ekki.

4 Nei, hann blundar ekki og sefur ekki, hann, vörður Ísraels.

5 Drottinn er vörður þinn, Drottinn skýlir þér, hann er þér til hægri handar.

6 Um daga mun sólarhitinn eigi vinna þér mein, né heldur tunglið um nætur.

7 Drottinn mun vernda þig fyrir öllu illu, hann mun vernda sál þína.

8 Drottinn mun varðveita útgöngu þína og inngöngu héðan í frá og að eilífu.