Sálmarnir 120

<< Sálmarnir 120 >>
Psalm 120 Icelandic
 

1 Ég ákalla Drottin í nauðum mínum, og hann bænheyrir mig.

2 Drottinn, frelsa sál mína frá ljúgandi vörum, frá tælandi tungu.

3 Hversu mun fara fyrir þér nú og síðar, þú tælandi tunga?

4 Örvar harðstjórans eru hvesstar með glóandi viðarkolum.

5 Vei mér, að ég dvel hjá Mesek, bý hjá tjöldum Kedars.

6 Nógu lengi hefir sál mín búið hjá þeim er friðinn hata.

7 Þótt ég tali friðlega, vilja þeir ófrið.