Sálmarnir 3

<< Sálmarnir 3 >>
Psalm 3 Icelandic
 

1 Sálmur Davíðs, þá er hann flýði fyrir Absalon syni sínum.

2 Drottinn, hversu margir eru mótstöðumenn mínir, margir eru þeir er rísa upp í móti mér.

3 Margir segja um mig: ,,Hann fær enga hjálp hjá Guði!`` [Sela]

4 En þú, Drottinn, ert hlífiskjöldur minn, þú ert sæmd mín og lætur mig bera höfuð mitt hátt.

5 Þá er ég hrópa til Drottins, svarar hann mér frá fjallinu sínu helga. [Sela]

6 Ég leggst til hvíldar og sofna, ég vakna aftur, því að Drottinn hjálpar mér.

7 Ég óttast eigi hinn óteljandi manngrúa, er fylkir sér gegn mér á allar hliðar.

8 Rís þú upp, Drottinn, hjálpa mér, Guð minn, því að þú hefir lostið fjandmenn mína kinnhest, brotið tennur illvirkjanna. [ (Psalms 3:9) Hjá Drottni er hjálpin, blessun þín komi yfir lýð þinn! [Sela] ]