Sálmarnir 2

<< Sálmarnir 2 >>
Psalm 2 Icelandic
 

1 Hví geisa heiðingjarnir og hví hyggja þjóðirnar á fánýt ráð?

2 Konungar jarðarinnar ganga fram, og höfðingjarnir bera ráð sín saman gegn Drottni og hans smurða:

3 ,,Vér skulum brjóta sundur fjötra þeirra, vér skulum varpa af oss viðjum þeirra.``

4 Hann sem situr á himni hlær. Drottinn gjörir gys að þeim.

5 Því næst talar hann til þeirra í reiði sinni, skelfir þá í bræði sinni:

6 ,,Ég hefi skipað konung minn á Síon, fjallið mitt helga.``

7 Ég vil kunngjöra ályktun Drottins: Hann mælti við mig: ,,Þú ert sonur minn. Í dag gat ég þig.

8 Bið þú mig, og ég mun gefa þér þjóðirnar að erfð og endimörk jarðar að óðali.

9 Þú skalt mola þá með járnsprota, mölva þá sem leirsmiðs ker.``

10 Verið því hyggnir, þér konungar, látið yður segjast, þér dómarar á jörðu.

11 Þjónið Drottni með ótta og fagnið með lotningu.

12 Hyllið soninn, að hann reiðist eigi og vegur yðar endi í vegleysu, [ (Psalms 2:13) því að skjótt bálast upp reiði hans. Sæll er hver sá er leitar hælis hjá honum. ]