Sálmarnir 98

<< Sálmarnir 98 >>
Psalm 98 Icelandic
 

1 Sálmur. Syngið Drottni nýjan söng, því að hann hefir gjört dásemdarverk, hægri hönd hans hjálpaði honum og hans heilagi armleggur.

2 Drottinn hefir kunngjört hjálpræði sitt, fyrir augum þjóðanna opinberaði hann réttlæti sitt.

3 Hann minntist miskunnar sinnar við Jakob og trúfesti sinnar við Ísraels ætt. Öll endimörk jarðar sáu hjálpræði Guðs vors.

4 Látið gleðióp gjalla fyrir Drottni, öll lönd, hefjið gleðisöng, æpið fagnaðaróp og lofsyngið.

5 Leikið fyrir Drottni á gígju, á gígju með lofsöngshljómi,

6 með lúðrum og básúnuhljómi, látið gleðióp gjalla fyrir konunginum Drottni.

7 Hafið drynji og allt sem í því er, heimurinn og þeir sem í honum lifa.

8 Fljótin skulu klappa lof í lófa, fjöllin fagna öll saman

9 fyrir Drottni sem kemur til að dæma jörðina. Hann dæmir heiminn með réttlæti og þjóðirnar með réttvísi.