Sálmarnir 84

<< Sálmarnir 84 >>
Psalm 84 Icelandic
 

1 Til söngstjórans. Á gittít. Kóraíta-sálmur.

2 Hversu yndislegir eru bústaðir þínir, Drottinn hersveitanna.

3 Sálu mína langaði til, já, hún þráði forgarða Drottins, nú fagnar hjarta mitt og hold fyrir hinum lifanda Guði.

4 Jafnvel fuglinn hefir fundið hús, og svalan á sér hreiður, þar sem hún leggur unga sína: ölturu þín, Drottinn hersveitanna, konungur minn og Guð minn!

5 Sælir eru þeir, sem búa í húsi þínu, þeir munu ætíð lofa þig. [Sela]

6 Sælir eru þeir menn, sem finna styrk hjá þér, er þeir hugsa til helgigöngu.

7 Er þeir fara gegnum táradalinn, umbreyta þeir honum í vatnsríka vin, og haustregnið færir honum blessun.

8 Þeim eykst æ kraftur á göngunni og fá að líta Guð á Síon.

9 Drottinn, Guð hersveitanna, heyr bæn mína, hlýð til, þú Jakobs Guð. [Sela]

10 Guð, skjöldur vor, sjá og lít á auglit þíns smurða!

11 Því að einn dagur í forgörðum þínum er betri en þúsund aðrir, heldur vil ég standa við þröskuldinn í húsi Guðs míns en dvelja í tjöldum óguðlegra.

12 Því að Drottinn Guð er sól og skjöldur, náð og vegsemd veitir Drottinn. Hann synjar þeim engra gæða, er ganga í grandvarleik. [ (Psalms 84:13) Drottinn hersveitanna, sæll er sá maður, sem treystir þér. ]