Sálmarnir 75

<< Sálmarnir 75 >>
Psalm 75 Icelandic
 

1 Til söngstjórans. Lag: Spill eigi. Asafs-sálmur. Ljóð.

2 Vér lofum þig, ó Guð, vér lofum þig, og þeir er ákalla nafn þitt, segja frá dásemdarverkum þínum.

3 ,,Þegar mér þykir tími til kominn, dæmi ég réttvíslega.

4 Þótt jörðin skjálfi með öllum þeim, er á henni búa, þá hefi ég samt fest stoðir. [Sela]

5 Ég segi við hina hrokafullu: Sýnið eigi hroka! og við hina óguðlegu: Hefjið eigi hornin!

6 Hefjið eigi hornin gegn himninum, mælið eigi drambyrði hnakkakerrtir!``

7 Því að hvorki frá austri né vestri né frá eyðimörkinni kemur neinn, sem veitt geti uppreisn,

8 heldur er Guð sá sem dæmir, hann niðurlægir annan og upphefur hinn.

9 Því að bikar er í hendi Drottins með freyðandi víni, fullur af kryddi. Af því skenkir hann, já, dreggjar þess súpa og sötra allir óguðlegir menn á jörðu.

10 En ég vil fagna að eilífu, lofsyngja Jakobs Guði. [ (Psalms 75:11) Öll horn óguðlegra verða af höggvin, en horn réttlátra skulu hátt gnæfa. ]