Sálmarnir 4

<< Sálmarnir 4 >>
Psalm 4 Icelandic
 

1 Til söngstjórans. Með strengjaleik. Davíðssálmur.

2 Svara mér, er ég hrópa, þú Guð réttlætis míns! Þá er að mér kreppti, rýmkaðir þú um mig, ver mér náðugur og heyr bæn mína.

3 Þér menn! Hversu lengi á sæmd mín að sæta smán? Hversu lengi ætlið þér að elska hégómann og leita til lyginnar? [Sela]

4 Þér skuluð samt komast að raun um, að Drottinn sýnir mér dásamlega náð, að Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.

5 Skelfist og syndgið ekki. Hugsið yður um í hvílum yðar og verið hljóðir. [Sela]

6 Færið réttar fórnir og treystið Drottni.

7 Margir segja: ,,Hver lætur oss hamingju líta?`` Lyft yfir oss ljósi auglitis þíns, Drottinn.

8 Þú hefir veitt hjarta mínu meiri gleði en menn hafa af gnægð korns og vínlagar. [ (Psalms 4:9) Í friði leggst ég til hvíldar og sofna, því að þú, Drottinn, lætur mig búa óhultan í náðum. ]