Sálmarnir 142

<< Sálmarnir 142 >>
Psalm 142 Icelandic
 

1 Maskíl eftir Davíð, er hann var í hellinum. Bæn.

2 Ég hrópa hátt til Drottins, hástöfum grátbæni ég Drottin.

3 Ég úthelli kveini mínu fyrir honum, tjái honum neyð mína.

4 Þegar andi minn örmagnast í mér, þekkir þú götu mína. Á leið þeirri er ég geng hafa þeir lagt snörur fyrir mig.

5 Ég lít til hægri handar og skyggnist um, en enginn kannast við mig. Mér er varnað sérhvers hælis, enginn spyr eftir mér.

6 Ég hrópa til þín, Drottinn, ég segi: Þú ert hæli mitt, hlutdeild mín á landi lifenda.

7 Veit athygli kveini mínu, því að ég er mjög þjakaður, bjarga mér frá ofsækjendum mínum, því að þeir eru mér yfirsterkari. [ (Psalms 142:8) Leið mig út úr dýflissunni, að ég megi lofa nafn þitt, hinir réttlátu skipast í kringum mig, þegar þú gjörir vel til mín. ]