Sálmarnir 124

<< Sálmarnir 124 >>
Psalm 124 Icelandic
 

1 Hefði það ekki verið Drottinn sem var með oss, _ skal Ísrael segja _

2 hefði það ekki verið Drottinn sem var með oss, þegar menn risu í móti oss,

3 þá hefðu þeir gleypt oss lifandi, þegar reiði þeirra bálaðist upp í móti oss.

4 Þá hefðu vötnin streymt yfir oss, elfur gengið yfir oss,

5 þá hefðu gengið yfir oss hin beljandi vötn.

6 Lofaður sé Drottinn, er ekki gaf oss tönnum þeirra að bráð.

7 Sál vor slapp burt eins og fugl úr snöru fuglarans. Brast snaran, burt sluppum vér.

8 Hjálp vor er í nafni Drottins, skapara himins og jarðar.