Sálmarnir 113

<< Sálmarnir 113 >>
Psalm 113 Icelandic
 

1 Halelúja. Þjónar Drottins, lofið, lofið nafn Drottins.

2 Nafn Drottins sé blessað héðan í frá og að eilífu.

3 Frá sólarupprás til sólarlags sé nafn Drottins vegsamað.

4 Drottinn er hafinn yfir allar þjóðir og dýrð hans yfir himnana.

5 Hver er sem Drottinn, Guð vor? Hann situr hátt

6 og horfir djúpt á himni og á jörðu.

7 Hann reisir lítilmagnann úr duftinu, lyftir snauðum upp úr saurnum

8 og leiðir hann til sætis hjá tignarmönnum, hjá tignarmönnum þjóðar hans.

9 Hann lætur óbyrjuna í húsinu búa í næði sem glaða barnamóður. Halelúja.