Fyrri Kroníkubók 14

<< Fyrri Kroníkubók 14 >>
1 Chronicles 14 Icelandic
 

1 Híram, konungur í Týrus, gjörði menn á fund Davíðs og sendi honum sedrustré, steinhöggvara og trésmiði til þess að reisa höll handa honum. 2 Davíð kannaðist þá við, að Drottinn hefði staðfest konungdóm hans yfir Ísrael, að konungdómur sinn væri hátt upp hafinn fyrir sakir þjóðar hans, Ísraels.

3 Davíð tók sér enn konur í Jerúsalem, og Davíð gat enn sonu og dætur. 4 Þetta eru nöfn þeirra sona, sem hann eignaðist í Jerúsalem: Sammúa, Sóbab, Natan, Salómon, 5 Jíbhar, Elísúa, Elpelet, 6 Nóga, Nefeg, Jafía, 7 Elísama, Beeljada og Elífelet.

8 Þegar Filistar heyrðu, að Davíð væri smurður til konungs yfir allan Ísrael, lögðu allir Filistar af stað að leita Davíðs. Og er Davíð frétti það, fór hann í móti þeim. 9 Og Filistar komu og dreifðu sér um Refaímdal. 10 Þá gekk Davíð til frétta við Guð og sagði: ,,Á ég að fara móti Filistum? Munt þú gefa þá í hendur mér?`` Drottinn svaraði honum: ,,Far þú, ég mun gefa þá í hendur þér.`` 11 Héldu þeir þá til Baal Perasím. Og Davíð vann þar sigur á þeim, og Davíð sagði: ,,Guð hefir látið mig skola burt óvinum mínum, eins og þegar vatn ryður sér rás.`` Fyrir því var sá staður nefndur Baal Perasím. 12 En þeir létu þar eftir guði sína, og voru þeir brenndir á báli að boði Davíðs.

13 Filistar komu aftur og dreifðu sér um dalinn. 14 Þá gekk Davíð enn til frétta við Guð, og Guð svaraði honum: ,,Far þú eigi í móti þeim. Far þú í bug og kom að baki þeim og ráð á þá fram undan bakatrjánum. 15 Og þegar þú heyrir þyt af ferð í krónum bakatrjánna, þá skalt þú leggja til orustu, því að þá fer Guð fyrir þér til þess að ljósta her Filista.`` 16 Og Davíð gjörði eins og Guð bauð honum og vann sigur á her Filista frá Gíbeon til Geser. 17 Og frægð Davíðs barst um öll lönd, og Drottinn lét ótta við hann koma yfir allar þjóðir.