Sálmarnir 23

<< Sálmarnir 23 >>
Psalm 23 Icelandic
 

1 Davíðssálmur. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta.

2 Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta.

3 Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns.

4 Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig.

5 Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur.

6 Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi.