Sálmarnir 12

<< Sálmarnir 12 >>
Psalm 12 Icelandic
 

1 Til söngstjórans. Á áttstrengjað hljóðfæri. Davíðssálmur.

2 Hjálpa þú, Drottinn, því að hinir trúuðu eru á brottu, hinir dygglyndu horfnir frá mönnunum.

3 Lygi tala þeir hver við annan, með mjúkfláum vörum og tvískiptu hjarta tala þeir.

4 Ó að Drottinn vildi eyða öllum mjúkfláum vörum, öllum tungum er tala drambsamleg orð,

5 þeim er segja: ,,Með tungunni munum vér sigra, varir vorar hjálpa oss, hver er drottnari yfir oss?``

6 ,,Sakir kúgunar hinna hrjáðu, sakir andvarpa hinna fátæku vil ég nú rísa upp,`` segir Drottinn. ,,Ég vil veita hjálp þeim, er þrá hana.``

7 Orð Drottins eru hrein orð, skírt silfur, sjöhreinsað gull.

8 Þú, Drottinn, munt vernda oss, varðveita oss fyrir þessari kynslóð um aldur. [ (Psalms 12:9) Hinir guðlausu vaða alls staðar uppi, og hrakmenni komast til vegs meðal mannanna. ]