Jósúabók 12

<< Jósúabók 12 >>
Joshua 12 Icelandic
 

1 Þessir eru konungar landsins, þeir er Ísraelsmenn unnu sigur á og tóku lönd af hinumegin Jórdanar, austanmegin, frá Arnoná til Hermonfjalls og allt sléttlendið austanmegin: 2 Síhon, Amorítakonungur, sem bjó í Hesbon og réð landi frá Aróer, sem liggur á bakka Arnonár, og dalnum miðjum og hálfu Gíleað að Jabboká, sem er á landamærum Ammóníta, 3 og sléttlendinu að Genesaretvatni að austanverðu og að vatninu á sléttlendinu, Saltasjó, að austanverðu, suður undir Bet Jesímót, og til suðurs að Pisgahlíðum. 4 Sömuleiðis land Ógs, konungs í Basan, sem var einn þeirra Refaíta, er eftir voru, og bjó í Astarót og Edreí 5 og réð yfir Hermonfjöllum, Salka og öllu Basan, að landamærum Gesúra og Maakatíta, og yfir hálfu Gíleað, að landamærum Síhons, konungs í Hesbon. 6 Móse, þjónn Drottins, og Ísraelsmenn höfðu unnið sigur á þeim, og Móse, þjónn Drottins, hafði gefið Rúbenítum, Gaðítum og hálfri ættkvísl Manasse landið til eignar.

7 Þessir eru konungar landsins, þeir er Jósúa og Ísraelsmenn unnu sigur á fyrir vestan Jórdan, frá Baal Gað í Líbanonsdal til Skallabergs, sem liggur upp til Seír, _ en landið gaf Jósúa ættkvíslum Ísraels til eignar eftir skiptingu þeirra _, 8 í fjalllendinu, á láglendinu, á sléttlendinu, í fjallahlíðunum, í eyðimörkinni og í suðurlandinu, _ land Hetíta, Amoríta, Kanaaníta, Peresíta, Hevíta og Jebúsíta: 9 Konungurinn í Jeríkó einn, konungurinn í Aí, sem er hjá Betel, einn, 10 konungurinn í Jerúsalem einn, konungurinn í Hebron einn, 11 konungurinn í Jarmút einn, konungurinn í Lakís einn, 12 konungurinn í Eglon einn, konungurinn í Geser einn, 13 konungurinn í Debír einn, konungurinn í Geder einn, 14 konungurinn í Horma einn, konungurinn í Arad einn, 15 konungurinn í Líbna einn, konungurinn í Adúllam einn, 16 konungurinn í Makeda einn, konungurinn í Betel einn, 17 konungurinn í Tappúa einn, konungurinn í Hefer einn, 18 konungurinn í Afek einn, konungurinn í Saron einn, 19 konungurinn í Madón einn, konungurinn í Hasór einn, 20 konungurinn í Simrón Meróm einn, konungurinn í Aksaf einn, 21 konungurinn í Taanak einn, konungurinn í Megíddó einn, 22 konungurinn í Kedes einn, konungurinn í Jokneam hjá Karmel einn, 23 konungurinn í Dór í Dórshæðum einn, konungur heiðingjanna í Gilgal einn, 24 konungurinn í Tirsa einn, _ alls þrjátíu og einn konungur.