Sálmarnir 87

<< Sálmarnir 87 >>
Psalm 87 Icelandic
 

1 Kóraíta-sálmur. Ljóð.

2 Drottinn grundvallaði borg sína á heilögum fjöllum, hann elskar hlið Síonar framar öllum bústöðum Jakobs.

3 Dýrlega er talað um þig, þú borg Guðs. [Sela]

4 Ég nefni Egyptaland og Babýlon vegna játenda minna þar, hér er Filistea og Týrus, ásamt Blálandi, einn er fæddur hér, annar þar.

5 En Síon kallast móðirin, hver þeirra er fæddur í henni, og hann, Hinn hæsti, verndar hana.

6 Drottinn telur saman í þjóðaskránum, einn er fæddur hér, annar þar. [Sela]

7 Og menn syngja eins og þeir er stíga dans: ,,Allar uppsprettur mínar eru í þér.``