Sálmarnir 70

<< Sálmarnir 70 >>
Psalm 70 Icelandic
 

1 Til söngstjórans. Davíðssálmur. Minningarljóð.

2 Guð, lát þér þóknast að frelsa mig, Drottinn, skunda mér til hjálpar.

3 Lát þá verða til skammar og hljóta kinnroða, er sitja um líf mitt, lát þá hverfa aftur með skömm, er óska mér ógæfu.

4 Lát þá hörfa undan sakir smánar sinnar, er hrópa háð og spé.

5 En allir þeir er leita þín, skulu gleðjast og fagna yfir þér, þeir er unna hjálpræði þínu, skulu sífellt segja: ,,Vegsamaður sé Guð!`` [ (Psalms 70:6) Ég er þjáður og snauður, hraða þér til mín, ó Guð. Þú ert fulltingi mitt og frelsari, dvel eigi, Drottinn! ]