Sálmarnir 26

<< Sálmarnir 26 >>
Psalm 26 Icelandic
 

1 Davíðssálmur. Lát mig ná rétti mínum, Drottinn, því að ég geng fram í grandvarleik og þér treysti ég óbifanlega.

2 Rannsaka mig, Drottinn, og reyn mig, prófa hug minn og hjarta.

3 Því að ég hefi elsku þína fyrir augum, og ég geng í sannleika þínum.

4 Ég tek mér eigi sæti hjá lygurum og hefi eigi umgengni við fláráða menn.

5 Ég hata söfnuð illvirkjanna, sit eigi meðal óguðlegra.

6 Ég þvæ hendur mínar í sakleysi og geng í kringum altari þitt, Drottinn,

7 til þess að láta lofsönginn hljóma og segja frá öllum þínum dásemdarverkum.

8 Drottinn, ég elska bústað húss þíns og staðinn þar sem dýrð þín býr.

9 Hríf eigi sál mína burt með syndurum né líf mitt með morðingjum,

10 þeim er hafa svívirðing í höndum sér og hægri höndina fulla af mútugjöfum.

11 En ég geng fram í grandvarleik, frelsa mig og líkna mér.

12 Fótur minn stendur á sléttri grund, í söfnuðunum vil ég lofa Drottin.