Sálmarnir 100

<< Sálmarnir 100 >>
Psalm 100 Icelandic
 

1 Þakkarfórnar-sálmur. Öll veröldin fagni fyrir Drottni!

2 Þjónið Drottni með gleði, komið fyrir auglit hans með fagnaðarsöng!

3 Vitið, að Drottinn er Guð, hann hefir skapað oss, og hans erum vér, lýður hans og gæsluhjörð.

4 Gangið inn um hlið hans með lofsöng, í forgarða hans með sálmum, lofið hann, vegsamið nafn hans.

5 Því að Drottinn er góður, miskunn hans varir að eilífu og trúfesti hans frá kyni til kyns.